Hafnarfjörður

Sumarklipping

23. apríl 2007 klukkan 18:08
Jæja, þá er sumarklippingin komin :) Langaði svo að vera með stutt hár í sumar og heppnaðist það bara ljómandi vel, hún Sunneva er alger snillingur.

Það vita kannski ekki allir að ég er búin að vera atvinnulaus í mánuð!! Sem er ótrúlega niðurdrepandi. Byrja að vinna 3 maí í Hafnarfirði og get ekki beðið, er að fara að vinna í Straumsvík og er komin með litla sæta stúdíóíbúð rétt hjá vinnunni hjá yndislegu fólki.  Þannig að þetta er allt að koma, allt að ganga upp.

Kvíður samt pínulítið fyrir því að flytja, er búin að búa á Ísafirði í næstum 20 ár.  Ég veit að þetta verður ótrúlega skemmtilegt, en maður er alltaf pínu kvíðinn þegar maður er að fara að prófa e-ð nýtt, er samt full tilhlökkunar, held að þetta verði æðislegt sumar :)

Er að fara til Bolungarvíkur í kvöld að heimsækja hana Eydísi mína. Hálfskammast mín fyrir að vera ekki búin að sjá nýju íbúðina, en hey, betra er seint en aldrei.  Þarf samt að keyra ofboðslega varlega, ég held að bíllinn minn sé að hrynja.  Allavegana eru bremsuklossarnir búnir og e-ð sem smyr e-ð í bremsunum er ekki að smyrja e-ð (what).  Síðan nööötrar hann líka ef ég fer yfir 60, maður hristist allur, stórhættulegt, kann ekkert á bíla, leiðinlegt. 

 Var samt að fatta, er byrjuð að blogga og er ekki búin að segja neinum frá því?? Hehe ætla að athuga hvort að einhver rambi inná þetta blogg mitt, annars verður þetta bara mitt private svæði ;)

Þangað til næst
Guðrún Agnes
4 athugasemdir

Blogg

22. apríl 2007 klukkan 18:48

Víí smá prufa, langar að byrja aftur með blogg, er samt ekki alveg viss.
Sjáum hvað setur.

Hef ekkert að segja, þangað til næst ..

Guðrún Agnes
Engin athugasemd